mandag den 31. marts 2008

torsdag den 27. marts 2008

Ég hafði það voða notalegt um páskana, borðaði páskaegg og fór í 2 matarboð!:)
Á þriðjudaginn bauð Agla mér á Viva la Fete tónleika á Vega. Ekkert smá frábærir tónleikar, þvílíkur kraftur í þeim-Ótrúlega skemmtilegir tónleikar!!:) Verst að þeir voru ekki á helgi til:P

En hérna í köben er greinilega að koma-komið vor! Búin að sjá nokkur blóm koma upp hér og þar. Svo er ég líka búin að spá hitabylgju hér í köben, hún ætti að byrja svona kringum 3.apríl og verðum mest allan april mánuð. Næs ekki satt!;)

Annars er nóg um að vera á næstunni. Endalausir tónleikar!:) Er að bíða eftir bréfi frá dönsku skólanum sem á að koma í vikunni, vonandi byrja ég sem fyrst! Svo redda ég mér vinnu á næstum dögum, borgar sig að vera bjartsýn ekki satt;) 
Í dag kemur svo Ian vinur min í heimsókn, en þetta er fyrsta skiptið hanns til köben. Þannig ég ætla gera mitt besta að sýna honum helstu staðina sem borgin hefur upp á að bjóða.

Jæja ætla fara koma mér út í góða veðrið.....:D

lørdag den 22. marts 2008

Matarboð hjá Ebbu og Hilmari í kvöld, nammi nammm. Hlakka til að borða góðan mat!:)

Páska-Mynd helgarinnar

Kasper Björke á Vega í gær. Þessi mynd kom nokkuð skemmtilega út fynnst mér:) Gleðilega páska!!!!!:)

tirsdag den 18. marts 2008

mynd helgarinnar

lørdag den 15. marts 2008

Home sweet home:)





Já Atli flutti til Reykjavíkur í morgun og eftir að hann fór urðu smá breytingar á íbúðinni:)
Þá er maður orðin einn í kotinu og hressandi innflutnings partý framundan í kvöld;)
Hvernig líst ykkur svo á placeið sófar?? Þetta fer allt að smella saman held ég barasta.

fredag den 14. marts 2008

Vinur minn..


Zalgernon gerði þetta fína nafnspjald handa mér:D

Á morgun....

er stór dagur í lífi mínu þá gerast skemmtilegir hlutir!!......:)

onsdag den 12. marts 2008

NOUVELLE VAGUE og LOW:)

Eru að koma til köben í næsta mánuði!;) Og auðvitað læt ég ekki vanta mig þar!
Missti af Nouvelle Vague síðast á Íslandi. Svo var ég að frétta að Low er að spila á Íslandi í Apríl líka...vissu þið það:)

Það eru margir hérna sem muna fíla þetta band!!!:)

www.myspace.com/thisistunng

Frábært band!!!:) Endilega segjið mér hvað ykkur fynnst um það, dugleg að kommenta;)

mandag den 10. marts 2008

Karma átti 9 hvolpa í vetur.....

Pabbi tók þessa mynd af einum þeirra, er maður ekki bara sætastur! 
Varð að sýna ykkur:)

Sennheiser HD 202 komin í hús!:)

Já þessi heyrnatól var ég að kaupa mér-var orðið illt í eyrunum að hafa þessi i-pod heyrnatól!
Enda er ekki hægt að bera saman hljómin ur þessum tveim eins og þið vitið.
Happy days!:)

søndag den 9. marts 2008

Stór dagur í lífi Svanhvítar!

Já haldið ekki að ég hafi farið í minn fyrsta alvöru hjólatúr í dag!!:) Hef ekki hjólað síðan ég var 11.ára gömul!!
Og viti menn, mér fannst það rosa gaman og get ekki beðið eftir að fara hjóla og hjóla og hjóla meira!!:)

Mynd helgarinnar

lørdag den 8. marts 2008

Mynd helgarinnar...sofar.

Hérna...fynnst engum ég vera búin að vera dugleg að blogga???:)
Kannski þarf maður að hætta blogga í einhvern tíma svo fólk kommenti og láti vita af sér;)

En hér seinna í dag..eða á morgun kemur mynd helgarinnar innar:)

onsdag den 5. marts 2008

Nýja uppáhalds bandið mitt...Electric President. Tékkið á þeim;) 

søndag den 2. marts 2008

Sprengjuhöllin á mynd helgarinnar!:)


Fórum á tónleikana í gær með sprengjuhöllinni og Hjaltalín hitaði upp fyrir þá. Frábærir tónleikar í alla staði. Og í tilefni þess verður þessi mynd, mynd helgarinnar.
Er þetta ekki bara pínu fín mynd hjá mér?:)
P.s. Það koma fleirri myndir af helginni á næstum dögum:)
Knús&kram

Home sweet home:)



Ég flutti inn í dag, er komið mitt eigið place!:) Þetta er flutningar tækið mitt, maður reddar sér hérna í köben;) Svo eru hinar myndirnar teknar i hverfinum mínu. Myndin fyrir ofan hjólið er húsið sem ég bý í:) Gott að vita það þegar þið komið í heimsókn;)


Ótrúlega skemmtileg helgi:) Matarboð hjá Ebbu, og Hjaltalín og Sprengjuhöllin á laugard:)