mandag den 26. maj 2008

helgarmyndir:)






lørdag den 24. maj 2008

torsdag den 22. maj 2008

Til hamingju með afmælið mamma:)

Þegar mamma og Stína voru hérna í heimsókn, buðum við Stina mömmu út að borða á elsta veitingarstað köbens:)
Þar var gaur sem spilaði live tónlist og við báðum hann um að spila afmælis söngin fyrir mömmu á dönsku og auðvitað tóku danirnir undir.....:)

Endilega skrifið mér komment það er svo gaman!!:)

Jæja búið að vera æðislegt að hafa mömmu og Stínu hérna!:) Skemmtum okkur svo vel!!
Ég er að fara í dönskutíma 2 í kvöld....líst bara ágætlega á þetta:)
En eins og allt var farið að ganga vel, þá lenti ég í leiðinlegu hjóla slysi í gær:,(
Var að hjóla í vinnuna um morgunin þegar stelpa kom og hjólaði í veg fyrir mig! Ég var í 100% rétti, hún gleymndi að kíkja til hliðar áður hún óð á hjólinu sínu þvert yfir hjólbrautina!
Ég hreinlega hjólaði beint inn í framhjólið hennar og flaug beint fram fyrir mig!
Ég fékk ljótt sár á handlegginn og bólgið hné. munaði litlu að ég hafi þurft að láta sauma sárið á hendinni...það er alveg svona gat inn í sárið:S
Allir voru voða næs og stoppuðu þegar ég datt og vildu allt fyrir mig gera. En ég var í svo miklu sjokki, fann ekki fyrir neinu, sagði að allt væri í lægi og helt afram að hjóla í vinnuna. Og þa sa ég sárið...  Heppin samt að hafa ekki meitt mig á hausnum eða andliti. Þetta var nefnilega ekkert smá fall.
En ég á pantaðan tíma hjá læknir á morgun.
Bara verst með vinnuna...nýbúin að vera í löngu fríi þegar Stína og mamma voru hérna og núna þetta.....:/

Ekki alveg lukkulegustu dagarnir hjá mér þessa stundina:(

lørdag den 17. maj 2008

torsdag den 15. maj 2008

Hrói?!

Hverjir ætla koma á Hróa í ár????? Rosa fínt line uppið:)

Sorry sorry sorry kæru vinir!

Hvað ég er búin að vera ódugleg að blogga, en það er búið að vera svo frábært veður að ég hef lítið verið inni!:) En það er mikið búið um að vera,,,er að fara byrja á dönsku námskeiði, komin með meðleigjanda og mamma og Stina eru í heimsókn núna. Þannig bara endalaus hamingja þessa dagana!!:) Skrifa meira um allt lífið í köben eftir helgi þegar gellurnar eru farnar úr heimsókn:)
Knús&kram frá köben
P.s. Er að koma í langa helgaferð...líklega yfir versló;)

Hér er brot af því sem búið er um að vera hjá mér síðustu daga.......fleirri myndir væntalegar:)