mandag den 14. april 2008

Hressandi helgi að baki...

Já það var annsi mikið um að vera um helgina!:) En þetta var síðasta helgin hanns Ian´s vinar minns hér í köben áður en hann heldur ti Japans.
Á föstudeginum var okkur boðið í partý hjá Simo, en hann er nýfluttur hingað til Köben. Hann hafði samband við mig í gegnum Couch surfing, kom einmitt í matarboð til mín á föstud í síðustu viku. En það var í fyrsta skiptið sem við hittumst.
Partýið var haldið í gömlu húsi í fredisberg þar sem hann er að leigja með danskri stelpu.
Þannig það voru allir danir fyrir utan okkur 3:) Þetta var svaka skemmtilegt partý og var stuðið alveg þangað til klukkan 5 um morgunin!:)
Svo á laugardeginum vorum við búin að plana fara í partý til styrktar "the rainforest!":) Byrjuðum á því að hittast heima hjá mér, ég, Jebbe, Ian og Simo. Eftir nokkra bjóra var haldið á stað í partýið, en maður borgaði bara inn það sem maður vildi borga.
Við hentum klinkinu okkar í þetta og vorum dugleg að styrkja kvöldið með að fara á barinn;)
Eftir rainforestið fórum við á einn bar niðri í bæ og svo heim um hálf 6:P
svoooo í gær fórum ég, Ian, Hilmar og Ebba að fá okkur ekta svona danskan mat á elsta veitinga stað köbens. Mjög góður góður matur og live tónlist undir;) Svo eftir matinn fórum við Ian að sja NOUVELLE VAGUE, það var góður endir af góðri helgi!!:)
Jæja ég er orðin pínu syfjuð...ennþá að jafna mig eftir helgina;) taka smá power nap fyrir kvöldið.
Svo verð ég líka að vera hress fyrir vinnuna á morgun!:D En hér koma myndir frá helginni:)......









1 kommentar:

Anonym sagde ...

Alltaf brjálað stuð hjá þér:) Það líður varla dagur þar sem þú ert ekki með einhver plön;)