Jæja búið að vera æðislegt að hafa mömmu og Stínu hérna!:) Skemmtum okkur svo vel!!
Ég er að fara í dönskutíma 2 í kvöld....líst bara ágætlega á þetta:)
En eins og allt var farið að ganga vel, þá lenti ég í leiðinlegu hjóla slysi í gær:,(
Var að hjóla í vinnuna um morgunin þegar stelpa kom og hjólaði í veg fyrir mig! Ég var í 100% rétti, hún gleymndi að kíkja til hliðar áður hún óð á hjólinu sínu þvert yfir hjólbrautina!
Ég hreinlega hjólaði beint inn í framhjólið hennar og flaug beint fram fyrir mig!
Ég fékk ljótt sár á handlegginn og bólgið hné. munaði litlu að ég hafi þurft að láta sauma sárið á hendinni...það er alveg svona gat inn í sárið:S
Allir voru voða næs og stoppuðu þegar ég datt og vildu allt fyrir mig gera. En ég var í svo miklu sjokki, fann ekki fyrir neinu, sagði að allt væri í lægi og helt afram að hjóla í vinnuna. Og þa sa ég sárið... Heppin samt að hafa ekki meitt mig á hausnum eða andliti. Þetta var nefnilega ekkert smá fall.
En ég á pantaðan tíma hjá læknir á morgun.
Bara verst með vinnuna...nýbúin að vera í löngu fríi þegar Stína og mamma voru hérna og núna þetta.....:/
Ekki alveg lukkulegustu dagarnir hjá mér þessa stundina:(
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
6 kommentarer:
fádu thér hjálm, greyid mitt, gott ad ekki fór verr. ég er búin ad vera netlaus lengi, en ætti ad rætast úr thví í kvöld ;)
bjöggi er ad fara annad en ég mæti á lau :)
annnan
Farðu vel með þig skvís...og endilega keyptu hjálm og muna að nota hann ;D Knús Sóla
æææ, óheppni var þetta. crazy hjólreiðamenn.
Ég lennti einu sinni í svona hjólaslysi. Var að hjóla á hringtorgi og var á dálítillli ferð þegar einhver gamall kall á bíl fer inná hringtorgið án þess að kíkja. Ég fer beint á framhúddið á bílnum og hendist uppá húdd og uppá framrúðu og skell svo með bakið í götuna.
Ég var ótrúlega heppinn að hausinn skall ekki í malbikið. EN ég einmitt var í svo miklu sjokki að ég fann ekki að ég tognaði í rassvöðva fyrr en ég var kominn heim.
Farðu varlega og já vertu með hjálm þó hann sé halló. Það er hallærislegra að nota hann ekki og eiga hættu á að ganga gersamlega frá sér.
Vandamálið við þessa hjálma eru að þeir eru svo fyrirferðamiklir. Þeir ættu að vera út um allt svo fólk geti bara kippt með sér einum og skilið hann svo eftir fyrir næsta mann.
Hvernig væri að hlusta vini sína og kaupa sér hjálm! Svanhvít það er TÖFF að vera öðruvísi eins og þú segir alltaf þannig að vertu öðruvísi og keyptu þér hjálm:) Og taktu svo mynd af þér og settu á netið sem sönnun fyrir mig og mömmu:)
já keyptu þér hjálm og hlustaðu á Hjálma :D
p.s. síðan hvenær heitiru Svanhvít Kritín?;)
gaui
Send en kommentar