onsdag den 11. juni 2008

Ástæðan fyrir því að það hafa ekki verið að koma myndir er að myndavélin mín er biluð:(

En það er búið að vera súper súper veður hérna úti!:) Fór á Sex in the city djamm um daginn. Mjög skemmtileg, byrjuðum á því að hittast á ströndinni í hádeginu og skáluðum svo í freyðivín;) En ég var ekkert alltaf ánægð með myndina...kannski ég prufi að horfa á hana aftur seinna. Alltaf einhvað um að vera hérna í köben!

Svo er ég komin á nýtt hjól eftir að hafa lent í semí stóru hjólaslysi en er nú búin að jafna mig eftir það:) Þetta er rosa fínt svona gamalt konu hjól og er fjólublátt!

Svo næst á dagskrá er Hróaskelda!!! jább er komin með miða:D Hlakka mikið til, enda geðveikt lineuppið í ár.

Já svo er ég komin með meðleigjanda frá Ástralíu Dana, ótrúlega fínn strákur. Hefði varla geta beðið um betri leigjanda.
Við erum einmitt með video-kvöld í kvöld. Ég, Simo og Dana erum öll í frí á morgun þannig að ég ætla að búa til banana/ostasprengju pizzu handa okkur! Og svo verður auðvitað drukkin danskur bjór með!:) Við erum að fara horfa á office space, ótrúlega langt síðan maður hefur séð hana!! Gaman gaman:)

Já svo er ég að koma í geimsókn á klakan 29.júlí!!:) Þannig þið megið fara plana djammið með mér;)

Ingen kommentarer: