Þá er maður loksins komin til köben, ferðin er búin að vera rosa fín:) Búin að ná að hitta alla sem ég þekki hér í köben...nema krakkana sem voru með mér í skólanum. Hitti þau á næstu vikum:)
Ég er búin að fara á listasýningu, út að borða, í matarboð, tónleika.....endalaust um að vera!:)
Svo núna í kvöld erum við Anna Linda á leiðinni til Berlinar, þar munum við Couch surfa hjá fólki.
Einn góður vinur minn Nils verður á sama tíma í Berlin, hann þekkir borgin mjög vel og ætlar að eyða með okkur tíma til að sýna okkur kúl staði og flóamarkaði;)
Þetta á bara eftir að verða skemmtilegt...kvikmynda hátíð í gangi þar og fullt af frægu fólki verður í Berlin, þar á meðal eitt af mínum uppáhöldum...Tim Burton!:)
Verð allavega að skella mér á 2 flotta kjóla...og jafnvel kannski einhvað skemmtilegt föndur dót!:)
Jæja verð að fara drífa mig að pakka....aðeins nokkrir tímar í flugið;)
P.s: Já ekki má gleyma því að við erum að fara líka á blindra veitingarstaðinn fræga, hlakka mikið til, vona við fáum sama þjón og ég fékk síðast:)
1 kommentar:
vonandi lendiru ekki á þjóninum sem ég lenti á ...ekki sú hressasta. Ég bið að heilsa Niels og CS-urunum:)
Send en kommentar