søndag den 17. februar 2008

Síðasta miðvikudag komu nokkrar af þemaklúbb stelpunum í helgar geimsókn til Köben:)
Það er búið að vera alveg frábært að hafa þær....verst að það komust ekki fleirru úr klúbbnum. Þið thema stelpur sem eru á Íslandi ykkar var sárt saknað hér.
Við byrjuðum á að fara á tónleika með The Cure á miðvikud, þeir spiluðu í heila 3 klukkutíma. Meiri orkan í þessum gömlu;)

Á föstudeginum skelltum Við Anna Linda okkur svo á sýningu í litlu art gallerý og svo á tónleika með snillinginum sjálfum Jens Lekman!:) Snilldar tónleikar!:)
Í gær var svo farið út að borða á rosa góðum indverskum stað sem heitir Bombey!
Og eftir það fórum við á pöbb sem var með mjög kúl live jazz.
Sem sagt frábær helgi í alla staði!:)

Svo tekur alvaran við á morgun. Fynna dönsku námskeið sem byrjar í þessum mánuði og vinnu líka vonandi:) Svo flyt ég inn í nýju íbúðina mína 2.mars:) 
Lífið er voða ljúft hérna í köben, ekkert á leiðinni heim alveg strax held ég;)

Knús og kram til ykkar!

Nýja símanúmerið mitt er: +45 5030 6706

1 kommentar:

-Hawk- sagde ...

Vá ég hlakka til að hitta þig í Köben þegar ég kem næst...

Veit þó ekkert hvenær það verður... en það verður.